
SportsCandy
-
Íþróttaálfurinn fær sér íþróttanammi með hverri máltíð. Honum finnst góð hugmynd að leyfa krökkunum að velja sjálf hvaða íþróttanammi þeir vilja borða á hverjum degi.
-
Íþróttaálfinum finnst gaman að búa til þemadaga eins og melónumánudaga og bananasunnudaga.
-
Íþróttaálfurinn notar íþróttanammi til þess að búa til þeytinga eða frosna ávaxtasafa. Af hverju að borða allt íþróttanammið þegar þú getur drukkið það líka?
-
Íþróttaálfurinn sker ávexti og grænmeti í litla munnbita og gefur þeim skemmtileg nöfn eins og eplabátar, appelsínuskip og bananabros.
-
Íþróttaálfurinn frystir stundum íþróttanammið sitt. Það er hægt að frysta allskyns íþróttanammi og það getur verið svo ótrúlega gaman að borða t.d. frosin vínber.
-
Íþróttaálfurinn ræktar jafnvel sitt eigið íþróttanammi. Sem dæmi má rækta tómata í gluggakistunni ef maður er ekki með sinn eigin garð.
-
Íþróttaálfurinn skolar alltaf íþróttanammið sitt áður en hann borðar það.





